05janúar

Nokkar myndir

Hæhæ takk fyrir síðast lömbin mín. Hérna eru nokkara myndir frá jólahlaðborðinu sem ég lofaði ykkur! Afsakið hvað það tók langan tíma;) vessegú!

tilbúnar
Tilbúnar í slaginn


Við í fyrirhittingnum

í Fyrirhittingnum.


limminn

þýðir ekkert annað en að fara með limma á jólahlaðborðið!


újé

í limmanum


jólus kortus

massívt jólakort

jæja þetta er bara smá brot...meira inná myspace.com/ninnasigga.

Gleðilegt ár allir og takk fyrir liðið!!!

yours truly

Ninna.

05. janúar 2008 klukkan 11:11
Jónína Sigríður Grímsdóttir
5 athugasemdir
30nóvember

Óþægilegar pælingar!

Hvað er að verða af mér!!!! Ég er svo að pæla í hlutum sem ég hef aldrei pælt í áður...hafa áhyggjur af hlutum einsog plokkun, meikuppi og skóm, what the hell is happening to me!!! sýnist þetta blessaða jólahlaðborð sé að láta mig kynnast sjálfir mér á alltannan hátt en ég er vön. Ég veit ekki enn hvort ég sé sátt við þessar breytingar en ég skal láta ykkur vita þegar ég veit það. En það er víst að ég mun ekki fara niðurí bæ eftir hlaðborðið í kjólnum og þessum skýjakljúfrum sem Frænka Ólafar Völu lánaði mér  (semsagt skónum) í það lýst mér best á að fara í hermannabuxunum mínum og stáltánni! Vil ekki að fólk sé að troða mér um tær hahaha. Auk þess er Kristín vinkona mín að vinna sem dyravörður á Q bar svo ég verð að lýta út fyrir að vera allavega smá hörð ;) Ég mun hvorteð er ekki hafa neinn til að halda á mér heim þannig að ég held að stáltáin verði bara kærkominn vinur ;)
Jæja núna eru 6 mín eftir af vaktinni og ég mun fara heim til Soffíu og kúra þar á sófanum, nei kæri lesandi, mér var ekki hent útúr rúmminu okkar Ólafar Völu heldur er mér ekki hætt að fara heim sökum 30 m/sek kviðna á Kjalarnesinu, auk þess erum við að fara að útrétta í Reykjavíkinni á morgun.
Talandi um Reykjavík, þá átti Ég, Soffía og litla Sigríður Björg góðan dag í miðborg Reykjavíkur á þriðjudaginn var. Við fengum smá jólastemmingu beint í æð og röltum niður Laugarveginn og enduðum svo á kaffihúsi, Kaffi París nánartiltekið. Sú stutta var heldurbetur ánægð með þetta og hoppaði um af kæti, ég bara varð að gefa henni eitt stk. jólasveinahúfu með bjöllu! ótrúlega mikið krútt.
Jæja ég þarf víst að fara að koma mér á sófann hennar Soffíu og kvíla lúin bein ;) Ég vona að allir verði með mér í anda (þau ykkar sem verða ekki með mér í persónu) á jólahlaðborðinu og deili sársauka mínum (útaf skónum) með mér. þetta verðru rosaleg, allsvakalegt hneikslanlegt jafnvel! úff...ég er farin!
lifið heil
takk fyrir lesturinn
yours truli
Ninna.
30. nóvember 2007 klukkan 00:01
Jónína Sigríður Grímsdóttir
4 athugasemdir
21nóvember

It's alive!

Jæja...vá...afrek nr.....úff hef misst töluna.
Núna er ég ekki í vinnunni þannig að ég ætti að geta klárað heila færslu og postað hana! Ég hef svo enga afsökun fyrir að klára þetta ekki þarsem ég er veik heima og hef ekkert betra að gera!
Jæja...(ég er mjög hrifin af þessu orði) hvað er búið að gerast síðan ég bloggaði síðast...sem var eithverntíman í sumar!? hvað skal segja, Við fórum til Danmerkur og við skemtum okkur konunglega! það var náungi í Tívolíinu sem hrósaði okkur fyrir að koma því þegar við komum kom sumarið! það borgar sig að vera Íslendingur. Ég er ekki frá því að Ólöf Vala hafi náð sér í vott af lit þarna úti (þarsem hún var að vinna inni í öllu góða veðrinu í sumar) En það var alveg klikkaður hiti þarna úti.
Við ákváðum að taka bara lestina á hótelið beint af flugvellinum, Ólöf Vala hafði fengið massagóðar leiðbeiningar sem við ætluðum sko að fara eftir og spara okkur taxapeninga. En það sem við reiknuðum ekki með var það að taskan sem við vorum með var frekar stór og óþjál íþróttataska sem ekki var hægt að vera með á bakinu (nema með miklum sársauka og förum daginn eftir, trúið mér ég get sannað það) þannig að við vorum að dröslast með stóru töskuna, tölvutöskuna og eithverja poka af lestastöðinni á hótleið í 29 stiga hita og svartamyrkri. Við fórum yfir eina brú...ákváðum að prófa að fara yfr aðra jæja en svo sáum við loks merkið á hótelinu, fórum í gegnum skuggalegan runna, ég mundaði tölvutöskuna tilbúin að slá henni utaní eithvern sem myndi abbast uppá okkur en þurfti þess ekki þarsem við komumst á hótelið heilu og höldnu. Ég rétt náði að segja nafnið mitt í móttökunni fyrir andnauð og þessháttar.
Ferðin var alveg æðisleg í alla staði. Ég nenni eginlega ekki að fara útí frekari ferðasögu en áhugasamir endielga kíkja á myndir á www.myspace.com/ninnasigga
Annar merkisatburður sem er búin að eiga sér stað síðan á síðustu bloggfærslu er sá að ég er orðin árinu eldri...þ.e.a.s ekki síðan ég blokkaði síðast heldur...æhj þið skiljið. Ég var svo merkileg að eiga 21 árs afmæli! þetta var bara ósköp kósí dagur heima, fékk gjafir, kökur og góðan mat! fékk í raun tvær veislur og köku sem var skreitt af einni færustu kökuskreytingardömu landsins! nú auðvitað henni Sigríðu Björgu! alveg frábær dagur í alla staði.
Hey já pabbi Ólafar Völu tók uppá því að gifta sig hér á landi! svo við héldum norður á land og sáum hann ganga í það heilaga (hann á sko heima í Norge) Við vorum fengnar í að hjálpa til með veitingar, engin fékk alvarlega matareytrun (sem við vitu af) þannig að ég held að þetta hafi gengið bara þokkalega! Allavega var Óli (tengdó) bara ánægður með okkur, við plönum að fara að kíkja á hann eithverntíman eftir jól.
jæja....ég held að brunnurinn hjá mér sé orðinn tómur. kem vonandi með aðra færslu núna fyrir jól. Ég er dugle að láta myndir á myspaceið mitt.
Ég er að fara á jólahlaðborð hjá Símanum 1. des og þá koma vonandi nýjar myndir á myspaceið þá, það verður ótrúlega flott (ég keypti mér meira að segja kjól...uss ekki segja neinum)
jæja...(síðasta jæjað mitt í dag)
Ég er búin í beli
egiði gott kvöld og góðan dag!
tataaaa
lifið heil
Kv.
Ninna.
21. nóvember 2007 klukkan 23:40
Jónína Sigríður Grímsdóttir
3 athugasemdir
25júlí

Hvað er þetta!

Núnú þetta er barasta blogg og allt!

Ég er nýkomin úr svona nokkurnvegin sumarfríi eftir frekar langa vinnutörn og er núna að klára mína fyrstu næturvakt. Hún er bara búin að ganga frekar vel. Ég er svo mikill nátthrafn að þetta er bara gaman. Ég er bara búin að vera að spjalla við vinnufélagann minn hér á minni virgin næturvakt og hlaða upp myndum og setja á myspaceið mitt svo ef þú ert með slíkan aðgang endilega kíktu! ;)

Ég fór með familíunni uppí Húsafell og mamma og Soffía áttu afmæli í millitíðinni. Það var ekkert smá gaman, heilmikill gestagangur og hellingur af krökkum hehe. Sigríður Björg í essinu sínu eins og vanalega! Svo var veðrið ekkert smá gott! Ég náði mér í sólbrúnku og allt sem er ekkert nema afrek útaf fyrir sig, svo til hamingju ÉG!

Nú fer að styttast í Dannmerkurferðina okkar Ólafar. Við erum orðnar ansi spenntar og farnar að setja niður á blað hvað okkur langar að skoða svo við eyðum ekki dýrmætum tíma í ekki neitt. Ólöf er komin með ágætis plan. hún hefur verið þarna áður svo ég leyfi henni að stýra.

Ég fór enn og aftur útá land með Ólöfu og mömmu hennar. núna var ferðinni heitið á vestfyrði, nánar tiltekið á Tálknafjörð þarsem var ættarmót hjá familíunni hennar það var bara stuð.

Jæja vinnan kallar ég ætla að segja þetta gott í bili. vonandi helst ég vakandi þangað til ég kem heimtil mín!
læt kannski heyra í mér aftur á morgun á næturvakt;)
25. júlí 2007 klukkan 06:56
Jónína Sigríður Grímsdóttir
7 athugasemdir
20júní

Spes við!

Hæhó!



Síðan í gær var okkur Ólöfu treyst fyrir Kirkjubraut 51 vegna þess að mamma hennar hélt í hjólaferð til Ítalíu...ég held samt að hún hafi flogið þangað í flugvél ;Þ



Það er nú ekki mikið búið að reyna á það að vera bara tvær í kotinu þarsem mamma hennar flaug í gærmorgun en það sem við höfðum planað sem rosalega rólegt og þægilegt kvöld breyttist skyndilega!!!! alltíeinu fylltumst við báðar þvílíkum eldmóð og fórum að rífa húsgögnin og dótið útúr herberginu hennar Ólafar og dreyfa því "snyrtilega" útum allt hús. þvínæst þegar það var búið að ryksuga og þurrka af vel völdum húsgögnum var greyið (10tonna) skápurinn rifinn frá veggnum og færður útá mitt gólf...ákváðum að það væri rosalega flott að hafa stóran fataskáp á miðju gólfinu og fyrir rúminu þannig að við færum beint inní skápinn þegar við færum frammúr ;) hehe ekki alveg. já ég gleymi að koma því á framfæri að þarsem að konan mín er smiður og búin að taka áfanga í grunnteikningu var allt í herberginu mælt nákvæmlega og svo var herbergið teiknað í ákeðnum hlutföllum og húsögnin teiknuð á nýjum stöðum með tiliti til rafmagnsinstungna, ofna og glugga. Jæja hvar var ég...já alveg rétt skápurinn...þegar hann var komin vel framá gólf breiddum við plast yfir gólfið og teipuðum allan hringin í kringum vegginn...þegar Rikka var svo hugulsöm að redda okkur teipi :D svo tókum við fram aldagamla málnigu og hófumst handa við að mála hringin meðfram teipinu! svo í morgun vaknaði ég og rúllaði allan veginn...gaaaasalega dugleg á meðan Ólöf var í vinnunni en núna er ég í minni vinnu að bíða eftir að eithver hringi í mig...það er rosalega lítið að gera.



Svo á næstu dögum höldum við áfram að fikta í húsinu, raða uppá nýtt (eftir planinu sem Ólöf teiknaði) svo ætlum við í húsgagnaleiðangurskaup í IKEA (góð afsökun til að fara í IKEA;) ) svo á næstu dögum finnum við vonandi rúmið hennar undir dóti!!

Annars er lítið að frétta...nema í dag er merkisdagur! Hún Hildur (mágkona) á afmæli í dag!!! yeah!! ég fékk leyfi frá yfirmanninum mínum að hlaupa í smá afmælisboð til hennar! Hérmeð segi ég bara TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ELSKU HILDUR MÍN!



Já eins og hugsanlega gáfað fólk kann að sjá þá er niðurtalningar kubbur orðin virkur og telur niður í Dannmerkur ferð...og þá hefur þetta sama gáfaða fólk sem sá þetta væntanlega náð að leggja saman tvo og tvo og fengið það út að við værum að fara til Dannmerkur! hehe jamm þegar okkur leiðist förum við til útlanda ;) við fengum okkkur gasalega fínt hótel og læti...we're gonna live large í 5 daga hehe ;) svo komum við heim just in time fyrir Gay Pride!!

Jæja viðskiptavinir virðast eithvað vera að ranka við sér og vilja endilega tala við mig svo ég ætla að gefa mig á þeirra vald framað afmæliskaffi hjá Birni og Hildi!!!



blessó í biló..



lifið heil


Ninna.

20. júní 2007 klukkan 15:31
Jónína Sigríður Grímsdóttir
3 athugasemdir
03júní

Þreittur!!!

Úff....ég náði að halda þetta lengi út án þess að blogga....rosalega er ég dugleg en ég hélt þetta ekki lengur út! svo ég varð að setjast niður og skrifa smá..ég er svo sjaldan fyrir framan tölvu þið skiljið (kaldhæðni dauðans!!!)
Jæja...ég ætla að leyfa mér að kvarta, já heyriði það ég Jónína Sigríður Grímsdóttir ætla að kvarta smá! hver hefði trúað svoleiðis ósköpum. Ég er konulaus og búin að vera síðan klukkan rúmlega kað....14 á þriðjudag og mun vera það til svona c.a. 2:47 aðfaranótt næstkomandi miðvikudags...ég gef mér það að flugvélin actually lendi á réttum tíma og að þær fá sæti framarlega og komist fljótt í gegn og töskurnar þeirra verða þær fyrstu á færibandið! jamm þið hafið getið rétt í eyðurnar...Ólöf og mamma hennar eru flúnar úr rokinu og einstaka rigningunni (en samt ágæta hitanum) að ná sér í smá brúnku fyrir sóllausa sumarið á Íslandi (Ég er samt búinað panta sól allan tíman sem ég er ekki lokuð inní í þjónustuverinu just so you know)
Já ég ætla að vera frökk og segja það hreint út að mér finnst það mjög erfitt að vera án hennar í viku...ég vil ekki fá comment frá ykkur sem hljóðar eithvernvegin þannig að þið séuð í þvílíku long distance sambandi og sjáist ekki í marga mánuði hehe...ég hef fulla samúð með ykkur og vildi geta breytt hlutunum....Ég meina ég var í sambandi þarsem við hittumst bara á helgum og einstaka virkum dögum...en núna er maður bara orðin svo hrikalega góðu vanur og vill ekki hafa hlutina neitt öðurvísi ;) (ég er ekki að vera með leiðindi) Ég heimtaði að hún tæki með sér símann minn út svo hún gæti sent mér helling af myndum af sér....og vitiði það var hreint og beint frábær hugmynd! ég er búin að fá að fylgjast með brúnkunni hellast yfir hana og vitiði ég kvarta ekki ;) stelst kannski til að láta eina mynd sem ég fékk senda fylgja með ;)
Oki...sko...í gær og í dag voru ágætir dagar....hvað söknuðinn varðar....maður er svona búinað venjast þessu en svo á morgun eru kað 3 dagar í að hún komi og þá hellist óþolinmæðin yfir mig....hehe ég er verulga óþolinmóð manneskja...so eginlega kind of stay away....
Alrighty ég skal hætta vorkenna sjálfri mér.........ehh....kað skal segja.....ú það er óvissuferð hjá símanum á næstu helgi....wow..ég er farin að halda að ég egi mér ekkert líf þarsem ég hef nákvæmlega ekkert að segja....ef eithver þarna úti er með líf til sölu á kostakjörum endilega hafið samband við mig gæti hugsanlega gert tilboð í það!
Vitiði ég væri svo til í heimspekilegar vangaveltur en ég er bara svo tóm núna....klukkan er hálf 1 svaf alltof lengi síðustu nótt...og á að mæta í vinnu klukkan 8 í fyrramálið (sem er reyndar síðasti dagurinn minn í vinnu þangað til á næsta fimtudag vííí svo guys það verður sól á mán,þri og fim eins og ég pantað)
all in favor að ég skelli mér í sturtu skríði uppí rúm og fari að sofa rétti upp hendi og"Æ" *tel hendur á lofti* oki ég skil þetta þannig að mín sé ekki óskað lengur í heimi hinna vakandi...veriði sæl og góða nótt...
tataaa
yours
Ninna.

Mér finnst þetta hreint út sagt yndisleg mynd af henni!

Ólöf í skemmtigarði í Portúgal

03. júní 2007 klukkan 00:47
Jónína Sigríður Grímsdóttir
8 athugasemdir
14maí

Frekar tilganslaust

Jæja ætli maður verði ekki að hripa eithvað niður hérna. Ég tek hinsvegar enga ábyrgð á því að ef það sem ég skrifa hérna niður meikar ekkert sens!

Ég vil byrja á því að ég er bara nokkuð spræk með trukkalessuna sem vann eurovision! hefði samt viljað að við komumst áfram en það dugar víst lítið að berjast við þessa blessuðu pólitík sem ríkir í þessari keppni. Er ekki spurning að taka upp helming símakostning og helming dómnefnd....spurning

surprise surprise þá er ég í vinnunni þessa stundina, reyndar fæ ég engan matartíma í dag þarsem ég virðist vera skráð veik...ég veit ekkert hvað málið er með það en ég skal komast til botns í þessu máli um leið og yfir maðurinn minn kemur úr mat.

Ég er væntanlega í fríi eithvað í þessari viku og ég er búin að fá vilyrði þess að ég fái að slá garð og mála pall og alles! hlakka geggjða mikið til vonum bara að veðrið verði eins gott og það er í núna þegar ég er lokuð inni í þjónustuverinu (veik greinilega)

Veit ekki hvort að ég sé búin að koma því að en Ólöf er trésmiður in training og byrjaðði að vinna (annað sumarið í röð) á trésmiðaverkstæði uppá Skaga, allt í góðu með það nema í dag var hún og eithver annar sett í svona special op dæmi eru að vinna í nýbyggingu í Reykjavík, Veit ekki með ykkur en mér finnst þetta frekar töff. Svona svipað og þegar mér var hent í eithverskonar fallhlífastökksgræu og látin í körfu sem var fest á liftara með tveimur böndum og svo var lyft uppí 8-9 hæð í vöruhúsinu í Samskip til að telja kassa!
hehe ég fíla bara svona sérstök verkefni ;) makes you feel important somehow!

jæja þessi bloggfærsla er búin að taka mig svona c.a. 7 tíma svo hér set á punktinn.

njótið sólarinnar í botn.
14. maí 2007 klukkan 19:04
Jónína Sigríður Grímsdóttir
2 athugasemdir
15apríl

Komin úr fríi

Sælt veri fólkið! Eins og titillinn gefur svo skírt til kynna þá er ykkar einlæg komin úr fríi ykkur til ómældrar lukku get ég ýmindað mér því bara það eitt að ýminda sér Ísland án mín hlýtur að vera hörmung...sem betur fer þarf ég ekki að upplifa svona harm!

Jæja oki...það var stuð í Norge og DK. nema að við fórum með skipi, eða drulludalli eins og feðginin Ólöf og pabbi hennar vilja kalla fleyið knáa, til Kaupmannahafnar og vorum þar í rúma 8 klst. eða á meðan skipið, Crown og Skandinavia, lá við festar. Veistu ferðin til DK var snökt um skárri heldur en ferðin til baka. Við stöllur láum uppí rúmi alla ferðina til baka vel lyfjaðar á svefnpillu og læti. Ólöf greyið var þó mun veikari en ég. Í danmöku gerðum við eins og hver annar vell respected Dani og löbbuðum á algerlega mannauðu Strikinu og fórum í Tívolíið í Bakken. það var stuð...við Ólöf sáum það að það var ekki mjög gáfulegt að vera að fara í mörg tæki þarsem við vorum báðar mjög slæmar af sjóriðu (annað hvort það eða að Danmörk hafi ákveðið að fara sjóleiðina í páskafrí) svo við vorum bara á básunum þarsem maður gat eytt peningunum í leiki sem unnu okkur oftast eithverja bangsa, ég faldi mig fyrir aftan einn í draugahúsi sem við fórum í....

Eftir að við vorum komin aftur til Osló tók það nokkra daga fyrir okkur að losna við sjóriðuna aftur, en við áttum mjög góða páska, fyndið að vera í stórborg og sjá ekki fleiri á ferli heldur en hér á Akranesi á góðviðrisdegi. Við versluðum okkur föt og skó...fórum út að borða og kíktum á Kristínu í Tönsberg...mjög gaman að vera svona þykjustuni innfæddur norsari og kíkja útá land. Við fórum með Kristínu í Norskt party...það var rosalega gaman að hlusta á þau tala og skilja svona smá og smá. fyrir utan húsið tókum við Kristín þann gamla íslenska slagra er heitir í daglegu tali "Ég er eins og ég er" það var mjög gaman...Ólöfu langaði á þeim tímapunkti að labba bara niðrá lestarstöð í stað þess að fá far, skiliddigi...

Við áttum afmæli þarna úti...og kíktum á ótrúlega kósí tyrkneskan stað þá...þjónninn var svo mikil dúlla að okkur langaði að pakka honum inn taka hann með okkur heim og gefa frænku hennar Ólafar hann...svo daginn eftir háðum við einvígi við magann í okkur og fórum á indverskan stað sem var frekar spicy en góður og vitið hvað við lifðum af!...

Jæja svo leið að heimför...pabbi hennar fór með okkur báðar útá völl í einu þótt það væru 5 tímar á milli flugana hjá okkur, (hún þurfti að fljúga til köben og þaðan heim) svo það var í mínum verkahring að bíða á vellinum í Osló í meira en 5 tíma...það var gaaasalegt stuð...var of þreytt til að lesa....en skemti mér ágætlega við að kyngreina einn einstakling...en þegar ég var að verða búin að því stóð hún upp og fór á kvennaklóstið....it like blurring out the answer to a riddle just before you figure it out! piff...

Það var gott að komast loksins heim...og enn þann dag í dag höfum við ekki orðið varar við neitt sem við gleymdum...og ef það kemur svo í ljós að etihvað varð eftir segjum við að það hafi átt að vera eftir.

Ég byrjaði svo að vinna daginn eftir og búinað vinna einsog öfugur asni síðan...fyrir utan einn dag.

Jæja ég ætla að hætta þessu rugli í mér í smá stund og vinna þessar 40 mín sem ég á eftir...

lifið heil ungarnir mínir.

ykkar

Ninna.


Snjór Á páskadag
15. apríl 2007 klukkan 16:42
Jónína Sigríður Grímsdóttir
6 athugasemdir
01apríl

Margt hefur á daga mína drifið!

Jæja síðan ég bloggaði síðast hefur ýmislegt gerst...ég á örugglega eftir að gleyma helmingnum af því áður en ég lýk við færsluna svo spare with me.
byrjum bara á svona nokkurnvegin tímaröð.

Ég og Ólöf fórum á árshátíð Símans 10. mars. það var bara mjög gaman sko. var reyndar komin uppí rúm um miðnætti...átti sko að fara að vinna kl. 8 morguninn eftir svo ég varð að vera hress. þetta var bara hin fínasta árshátið allt ótrúlega flott og maturinn mjög góður. Hún var haldin í Laugardalshöllinni  hvorki meira né minna ;)

svo helgina eftir þessa merku árshátíð fórum við Ólöf uppí sumarbústað fjölskyldunnar hennar í Húsafelli það var ótrúlega næs. Snjór yfir öllu og ótrúlega rómó! svo var heitur pottur líka (það er náttúrulega möst) við skelltum okkur í hann svona nokkru sinnum í snjónum, ég hélt bara að lífið gerðist ekki betra. við vorum meira að segja ótrúelga duglegar að elda!

Svo eginlega rúsínan í pysluendanum er sú að við keyptum okkur nýjan bíl, ég segi nýjan bíl því hann er 2006 árgerð og aðeins 9 mánaða. hann var bara keyrður 3300 km. Hann er alveg frábær, verð alltaf meira og meira hrifin af honum. Var sem betur ver í þriggja daga fríi í síðustu viku svo ég gat hugsað veeel um hann. Þetta er rauður, Yaris....já ég veit kað þið hugsið..bíddu hatar Ninna ekki yaris...og bíddu er hún á RAUÐUM bíl??? hey people can change. þetta er fínn beinskiptur  bíll sem eyðir litlu bensíni og fékk hann á góðu verði. svo finnst mér þessi týpa af yaris mun flottari  heldur en eldri týpurnar.

Hey loksins kom 28.mars.2007 mömmu til mikillar gleði þá voru Sir Cliff Richard tónleikarnir í Laugarlalshöll við mæðgurnar fórum saman á Pinna (nýji  bíllinn) og made a day out of it...en þetta voru æðislegir tónleikar og við vorum á besta stað í stúku mamma skemti sér alveg hreint konunglega svo it was all worth it...við gáfum henni miðana í jólagjöf.

Jæja þá er bara næst á dagskrá NOREGUR! ég fer eftir tvo daga en Ólöf fer á morgun. það verður ótrúlega mikið stuð. vikufrí og alles. Ég get ekki beðið eftir að hitta Kristínu. Ólöf flýgur um 16 eða 17 leytið en ég 7:50 morgunin eftir. ég er að vinna frá 11-22 á morgun svo ég tek lítið eftir því að hún verði farin. Heyrðu já talandi um það ég er víst að fara í fermingu á eftir...fékk að vita það í gær....ég er að fara með henni í fermingu hjá frænda hennar...should I be scared?...þarsem ég þjáist af óstjórnlegri feimni en næ þó stundum að fela hana nokkuð vel....jæja þig hugsið til mín....þetta verður stuð kaða væl er þetta í mér ;)

jæja ég veit ekki hvenær ég læt heyra í mér næst en lifið heil þangað til

luv to all

bæjó

Ninna.
01. apríl 2007 klukkan 10:14
Jónína Sigríður Grímsdóttir
5 athugasemdir
04mars

boooring

Tölur eru fríkí!
 
Hæhæ við fórum á “the  number 23” í gærkvöldi. Mjög góð mynd sko, kom manni til að hugsa og virkilega spá í hlutunum, mælum með henni mjög svo.
Annars er eins og vanalega ekki mikið að frétta, er bar að vinna og vinna og vinna meira ;) er bara að gera góða hluti hérna ef ég má segja sjálf frá, líkar allavega vel. Ég er byrjuð að leggja fyrir fyrir nýju farartæki á fjórum hjólum, so wish me luck. Ég er í vinnunni núna surprise, surprise! Er að vinna frá 8 til 16 í dag. Vííí, það var mjög gaman að vakna fyrir 7 í morgun og halda af stað í bæinn...not! Dagurinn í gær (laugardagurinn) var bara fínn þó...vorum bara að hanga í bænum og stuff...hjálpuðum frænku hennar Ólafar að bera upp dót á 5 hæð...það var stuð...sérstaklega fyrir asmasjúklinga eins og mig! Hey það er stuð að flytja kað er þetta!
Hey vá svo hitti ég kunnugleg andlit í Kringlunni! Hitti Svövu og Þórdísi, hef ekki séð þær klikkað lengi...heilsaði þeim eins og mér einni er lagið...hljóp fyril þær og gaf Svövu heljarinnar hjartaáfall stuð! Ekki segja að ég sé vond manneskja!
Kað í ósköpunum get ég sagt meira, ég er geispandi eins og flóðhestur hérna í vinnunni klukkan er hálf 11 og ég er búin að fá 6 símtöl, újé! Fólk vaknar snemma.
Hey það hefur ekkert enn orðið úr því að hræða mig yfir hrillingsmynd (takk Rikka) Ég er ekkert að kvarta yfir því neitt sko...
Veistu ég er að reyna eins og ég get að segja eithvað merkilegt en ég bara finn ekkert til að segja...
Hey fólk! Ég og Ólöf erum að fara á árshátíð Símans á næstu helgi...ég kann ekkert á svonalagað, langaði samt að prófa, ég er að vinna klukkan 8 morguninn eftir svo ég verð ekki lengi á staðnum, það verður örugglega gaman að prófa þetta. Ég píndi mig til að fara í verslunarleiðangur í gær...var svo ekkert í stuði fyrir það (hata að versla) en keypti mér þó þessar fínu gallabuxur, já kæra fólk það eru fréttir þegar ég kaupi mér flíkur!
Vitiði kæra fólk ég ætla að hætta þessu í bili og láta heyra í mér þegar ég hef eithvað merkilegra að sega....kannski hef ég eithvað merkilegt að segja en er búin að steingleima því...þá látiði mig bara vita í commentum...

lifiði heil, vel og lengi elskurnar

tataaaa

bæjó

Ninna.
04. mars 2007 klukkan 10:49
Jónína Sigríður Grímsdóttir
4 athugasemdir

Könnun

Verð ég ekki sæt í kjólnum á Jólahlaðborði Símans?

Auglýsing

Undirsíðukubbur

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Jónína Sigríður Grímsdóttir
  • Staður: Akranes
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Þjónustufulltrúi, í tæknilegri aðstoð Símans
  • Hjúskaparstaða: Í sambandi ;)
  • Um mig: Ég er talin vera frekar skondin og létt furðuleg sem er ekkert til að skammast sín fyrir. Ég er fyrrverandi meðlimur í svartabílafélaginu. Munið endurræsing getur bjargað mörgu og meðal annars gert mig atvinnulausa!
  • Annað: Bújahh

Leit